SóS

26.04.2008 04:24:10 / Svandís

Allskonar

Enn og aftur er búið að minna mig á hvað ég er ógeðis léleg að blogga og alltaf kem ég með sömu afsökunina.. mér bara dettur ekkert í hug að blogga um. Binni kom með nokkrar hugmyndir.. þannig að ég ætla að taka þær og sjá hvað ég get sagt.

1. Mótmælin: Ég er alveg meðfallin mótmælunum sem eru í gangi.. ótrúlegt hvað við íslendingar látum alltaf ríða okkur í þurrt rassgatið!! Loksins er fólk farið að segja e-ð við öllu okrinu sem við lifum við.. það er varla hægt að lifa á íslandi lengur út af okri!!
Fínt að e-ð er gert.. þó er ég ekki meðfallin ofbeldi.. en ég held að löggan hafi ekki átt minni þátt í því en almenningur um daginn!

2. Sumarið: Sumarið er tíminn.. tíminn til að grilla, fara í sund, ferðast, drekka, vera úti og bara njóta sólarinnar í þann stutta tíma sem við sjáum hana.
Ég ætla að nota sumarið mitt í mostly að vinna en ég tek mér þó sumarfrí í júlí og ætla þá að keyra hringinn í kringum landið með dönsku fjölskyldunni minni og sýna þeim allt sem ísland hefur uppá að bjóða.
Svo verður grillað eins oft og hægt er með öllu tilheyrandi.. bjór og djammi. Ég ætla sko að skemmta mér í sumar.

3. Typpi og píkur: Gott að nota þetta tvennt saman!! um að gera að leika sér smá.

4. E-ð skemmtilegt: Ég á bara 11 vaktir eftir á hótelinu og ég er líklega að fara út til London næstu helgi með Vildísi, vei vei!!
Eurovision er að fara að byrja.. jibbí.. partý og læti!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 04:07:29 / Svandís

Mygla

Ég er gjörsamlega að leka niður hérna í vinnunni.. klukkan er að verða 4 og það þýðir 4 tímar eftir af vinnudeginum mínum.. er farin að sjá rúmið mitt í hyllingum og dreymir um að leggjast, loka augunum og svífa á vit draumanna þar sem ég og Óli Lokbrá leikum okkur saman á hverri nóttu eða já degi. ég verð að segja að ég get varla beðið eftir að fara á 8 tíma vaktir í staðinn fyrir 12, maður ætti allavega að geta átt smá líf dagana sem maður er að vinna, annað en núna, ég á mér bara líf aðra hverja viku. Eina góða að vera að vinna svona mikið aðra vikuna er að ég eyði nákvæmlega engu þá vikuna EN og það er sko stórt EN.. í frívikunni minni eyði ég alltaf alltof alltof miklu þannig að kannski er það bara ekkert gott.

En já.. ég er sem sagt búin að segja upp á hótel Loftleiðum, vei vei, og komin með nýja vinnu í reiknistofu bankanna, vei vei. Byrja þar einhvern tíman í maí og ég get ekki beðið, en áður en ég hætti hérna þá ætla ég að sjálfsögðu að nýta mér ódýru flugmiðana mína sem ég á fyrir mig og einn vin.. hver vill með e-ð til útlanda?

Þetta er ábyggilega tóm steypa sem ég er að skrifa hérna, augun eru farin að ranghvolfast, hef enga stjórn á hausnum á mér lengur.. hann dettur bara niður og ég geispa og geispa.

Ég er bara að reyna að drepa tímann með þessu, og sko mig, 5 mínútur farnar þannig að nú á ég bara 3 klukkutíma og 55 mínútur eftir.. vei, vei.

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 02:05:18 / Svandís

23 ára

Ég er orðin 23 ára, í gær ef ég á að vera nákvæm, og ég vil endilega þakka öllum sem sendu mér sykursætar afmæliskveðjur mjög fyrir þær, einnig þeim sem gáfu mér e-ð fallegt.. búin að fá margt fallegt og er ótrúlega þakklát og svo verð ég að segja takk Binni fyrir þetta æði pæði blogg.. ég veit ég er að vera ótrúlega væmin en ég er bara svo þakklát fyrir mína yndislegu vini og fjölskyldu og maður má líka vera væmin stundum!!

Ég er andvaka.. get ekki sofið og því sit ég hérna inní herbergi að dunda mér e-ð á netinu og hlusta á tónlist, get líklega kennt tónlistinni um væmnina í mér.. tónlistin er flokkuð í tölvunni minni sem rólegt og væmið, úje.

Annars fór ég og Blanca á djammið í gær, svona í tilefni dagsins! Byrjuðum heima á singstar þar sem var sungið úr sér lifur og lungum, þegar klukkan var að líða 3 ákváðum við að skella okkur í bæinn og hringdum í taxa. Við fórum á 2 staði í bænum, byrjuðum á Hressó þar sem okkur var meðal annars boðið í sleik, Blanca var með vodka og appelsínusafa í sprautuflösku og notaði hana hiklaust til að sprauta á rassinn á einhverjum stelpum og snéri sér svo við eins og hún vissi ekki neitt!! Blanca lét líka alla í bænum í gær vita að ég ætti afmæli og kom því til skila á alla mögulega vegu, ég fékk allmargar kveðjur og koss á kinnina.
Inni á Hressó voru líka ótrúlega mikið af ógeðis köllum sem komu upp að okkur þegar við vorum að dansa og til að losna við þá sagði Blanca þeim að við værum saman!! ja.. við losnuðum allavega við ógeðis kallana!!
Kíktum á apótekið en það var bara leiðinlegt og því ákváðum við að þetta væri að verða gott, skelltum okkur uppí taxa en enduðum á loftleiðum í heimsókn hjá Binna, sem var btw alveg ótrúlega glaður að sjá okkur!! náðum sem sagt aftur að gera okkur að fíflum á loftleiðum með því að mæta æpandi fullar þangað... úje
já.. ég held að allir hafi verið ánægðir þegar taxinn kom og við fórum heim að sofa.

Held ég fari að reyna að koma mér að sofa.. guten nacht.. ach ja!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 11:15:53 / Svandís

Lasarus

Ohh.. það sökkar svo feitast að vera veikur!! Held barasta að ég væri frekar tilbúin til að borða einn heilan tómat frekar en að vera veik.. og þá er mikið sagt belív jú mí!!

Annars er það að frétta af mér að ég er bara að leyta mér að nýrri vinnu, búin að sækja um smá og vona bara að e-ð fari að gerast.

Svo þó ég eigi ekki ammli fyrr en eftir 17 daga þá er ég búin að fá 2 afmælisgjafir... eina frá Binna sem gaf mér Hollywood Buzz (hann er því miður líka búinn að vinna mig í þessi 2 skipti sem við höfum spilað... en minn tími mun koma) já og svo hina gjöfina fékk ég frá Blöncu, hún gaf mér svoldið í því sem ég ætla að kaupa handa sjálfri mér í afmælisgjöf í ár.. ætla að kaupa mér einhverja flotta myndavél þar sem að mín er orðin e-ð leiðinleg.

Ég og Blanca fórum á árshátíð subway síðasta föstudag, mjög skemmtileg helgi af baki og mikil þynnka.. set smá myndir frá því svona í lokin.







» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 01:32:51 / Svandís

295 orð frá mér til þín

Ég fór í dag og keypti mér nokkrar freknur, 750 kr. takk fyrir 20 mínútur. Reyndar sé ég ekki mikið eftir þessum krónum þar sem að þessar 20 mínútur voru alveg fyrirtaks slökun, gat sofnað á þessum tíma á meðan freknurnar komu til mín hver á eftir annarri, hoppandi af gleði yfir að fá smá ljós!!
Það er svona þegar maður vinnur næturvinnu þá er ekki mikið um ljós í lífi manns.

Stelpur eru dýrar í rekstri, allt sem við þurfum er dýrt (og já við þurfum þetta), snyrtidót (andlitið mitt) það er allt rándýrt, 1 maskari kostar varla undir 2000 kr. meik á 3-5 þús, + allt hitt, smá blush í kinnarnar, augnblýantur, gloss, augnskuggi, augnbrúnalitur, það kostar sko að þurfa að setja á sig andlit, því belív jú mí, þið viljið ekki hafa mig án þess!!

Svo er það hárið, ég telst nú vera með tiltölulega stutt hár en samt kostar það yfir 8 þúsund fyrir mig að fara í litun og klippingu, og það er ekki mikið ódýrara að ætla að láta lita bara í rótina þó það sé notaður helmingi helmingi minni litur nei.. yfir 6 þúsund.

Fötin og skórnir eru svo alveg sér á báti, stelpur eiga aldrei nóg af fötum, né skóm!!!!
rándýrt að kaupa föt og skó á íslandi og ef maður fer til útlanda þá má maður bara koma með heim fyrir 46 þúsund.. sem er náttlega bara djók.

já Ísland er dýrt en ég er að fara á árshátíð á föstudaginn og ég ætla á morgun að fara og lita á mér hárið, kaupa mér meik, fara svo á föstudaginn og kaupa mér föt og kannski skó, fara svo í ríkið og drekka svo úr mér allt vit um kvöldið þar sem ég verð orðin blönk.

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 03:48:36 / Svandís

allt breytt

blog central er bara búið að vera í fokki uppá síðkastið!! búið að breyta síðunni minni því að það styður ekki lengur niðurstrik og svo ætlaði ég aldrei að komast inná vefstjórnina út af vitlausu lykilorði, sem var svo ekkert vitlaust!! og nú kann ég heldur ekkert á þetta dót lengur!! 

annars er alltaf jafn mikið stuð hjá mér.. er að vinna, nýbúin að hjálpa fólki úr lyftunni sem festist á milli hæða. Binni búinn að hringja í mig bara til að segja mér hvað er gaman hjá sér á djamminu!! Alltaf æðislegt að fá hringingar frá fólki að segja hvað það sé gaman hjá sér þegar maður er í vinnunni á 12 tíma vakt sem líður hægar en snigill að hlaupa!!!



svona by the way.. lesa einhverjir þetta blogg?

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 01:57:53 / Svandís

Snjókorn falla

ég veit ég er löt að blogga, ógeðslega löt reyndar, en það getur bara verið erfitt að finna e-ð að blogga um þegar maður lifir algjörlega tilbreytinga lausu lífi.

heimska veður sem er úti, ég ætlaði á selfoss í fríinu mínu en það virðist vera ómögulegt þar sem að allt er ófært og lokað, því er ég ein heima í kópavoginum að láta mér leiðast.

í svona veðri langar manni bara að kúra uppí sófa með sæng og horfa á góða mynd.
í augnablikinu langar mig að horfa á gamlar myndir, myndir sem ég horfði á þegar ég var lítil og horfði endalaust á, eins og :

Honey I shrunk the kids.. veit ekki hve oft ég horfði á þá mynd, kunni hana allavega utan að.

Camp Nowhere, ég gjörsamlega elskaði þessa mynd og væri svo til í að horfa á hana núna!!

Look who's talking: I like it


Ernest goes to camp, æðislegar myndir (svona allavega eins og ég man eftir þeim)

 ohh well.. það er spáð óveðri á morgun aftur þannig að ég kemst ekki á selfoss strax.
vantar e-ð að gera hérna í rvk, einhverjar uppástungur?


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 04:15:43 / Svandís

í tilefni 2008

og þess að Binni sagðist ætla að kúka á ofninn í herberginu mínu ef ég myndi ekki blogga!!

Klukkan er rétt gengin 4 að nóttu til og ég er að vinna.. ég sit hérna á Loftleiðum, búin að skoða allt sem mér dettur í hug á internetinu, Kristó er að leika sér í StarWars leik í tölvunni sinni, þannig að ekki get ég talað við hann, ég er búin að leggja nokkra kapala eða kapla hvernig sem maður á að segja það og ég er með bók en ég bara er ekki í stuði til að lesa. Já.. tíminn líður hægt núna!!

Þess vegna er ég að hugsa um að spá aðeins í árinu 2007 og er að spá í að hafa þetta bara álíka og Binni.

Janúar

- Ný útskrifuð byrjaði ég að vinna á Hótel Selfoss í gestamóttökunni. Þessi mánuður fór minnir mig mestur í að bara læra á allt í vinnunni og rólegheit.

Febrúar

- Ég keypti mér bíl eða hann Justin, eðal vagn frá árinu '97. Ég og hann erum orðnir bestu vinir og höfum við átt mjög góða tíma saman. Þennan mánuð skellti ég mér í Reykjavíkina sem væri ekki frásögufærandi nema það að það var fyrsta skipti sem ég keyrði þar ein.. ekkert mál!
Skellti mér líka á krókinn ef mig minni rétt, þar sem var farið í heimsóknir og líklega e-ð djamm líka.

Mars

- Ég átti afmæli, varð 22 ára og ég og Heiðrún skemmtum okkur mjög vel það kvöld.
ég og Sverrir fórum líka í sumarbústað.. ágætis afslöppun. og svo fór ég á Audi bílasýningu og fann draumabílinn. Byrjaði líka með þetta blogg og sagði eiginlega bara bless við subbubloggið.

Apríl

- Fór norður.. mjög gaman, djamm Palli á barnum. Fór í Jarðaför ömmu minnar :cry:

Maí

- fór út að borða og djamm með Subway og svo næsta kvöld staffadjamm á hótel Selfoss.. góða helgi fyrir utan að þurfa að mæta í vinnu eftir djamm. annars man ég voða lítið.. nema jú..
Sverrir og Binni eiga afmæli í þessum mánuði

Júní

- Ég og Hildur Seljan fórum í road-trip um ísland.. BARA gaman!! Keyrðum hringinn með stoppi á Sauðárkrók og Reyðarfirði. og svo að sjálfsögðu nokkrum túristastoppum, misstum reyndar af Jökulsárlóni.
Fór líka með Sverri og Axel í litla "jeppaferð", tók bara hálfan dag en var í alla staði ótrúlega skemmtileg.

Júlí

- Ég og Heiðrún skelltum okkur í smá road-tripp, keyrðum bara e-ð og enduðum á Hvammstanga, tjölduðum fyrir framan mjólkurbúið og skelltum okkur á ball með Sniglabandinu. snilldar ferð.

Ágúst

- Fór á krókinn og var í viku.. ágætis afslöppun. Annars var ég bara að vinna og sagði svo upp vinnunni minni.

September

- Ég pantaði mér ferð til Danmerkur.

Október

- Ég og Jóhanna skelltum okkur til danmerkur.. mikið verslað og minna djammað. Fyrsta skipti sem ég hef þurft að borga yfirvigt.
Fann líka fyrir fyrsta jarðskjálftanum mínum í þessum mánuði og komst að því að mér finnst þeir bara ekkert skemmtilegir.

Nóvember

- Var bara að vinna minnir mig og leyta að vinnu, fékk vinnu á Hótel Loftleiðum á næturvöktum.

Desember

- Flutti til Binna í byrjun mánaðarins og byrjaði að vinna á Loftleiðum. Kvaddi starf mitt á Hótel Selfoss.
Verslaði mikið af jólagjöfum. Eyddi jólunum og áramótunum á Selfoss í faðmi fjölskyldunnar.

Gott ár á enda.. og vonandi ennþá betra í vændum.

og Binni.. nú verður ekkert kúkað á ofninn minn!!! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 11:40:32 / Svandís

og já...

GLEÐILEGT ÁR


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 15:33:25 / Svandís

...

GLEÐILEG JÓL


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 06:37:04 / Svandís

Smá update..

Þá ætla ég að taka smá hlé frá pásunni minni.. þó að um leið og ég er búin að blogga þetta blogg þá byrjar pásan aftur!

Margt hefur drifið á daga mína síðustu viku, sunnudaginn 2. des flutti ég í Kópavoginn til Binna, og daginn eftir byrjaði ég í nýju vinnunni minni, á Hótel Loftleiðum, en ég er í lobby-inu á næturvakt þar.
Ég fór samt aftur á Selfoss síðustu helgi þar sem ég varð að ljúka vinnu minni þar og nú er ég búin að kveðja Hótel Selfoss með nokkrum knúsum og kossum!!

Já.. ég ætti kannski aðeins að sundurliða þetta..

Innflutningurinn til Binna gekk vel, en ég á reyndar enn eftir að koma mér almennilega fyrir þar sem mig vantar enn nokkra hluti, eins og dvd-hillurnar mínar, og svo er ég búin að vera að vinna alla vikuna og hef ekki haft mikinn tíma til að klára að un-pakka. Þó hef ég komið því í verk að þrífa "aðeins" inná baði og inní eldhúsi!! og ég get fullvissað fólk um það að strákar eru blindir á óhreinindi!! enda er ég búin að vera með tuskuna á lofti hvert sem ég fer um íbúðina og nöldra við Binna um hitt og þetta.. haha, hann á eftir að henda mér út eftir viku!!!

Nýja vinnan er fín (enn sem komið er) og ég lendi í nýju ævintýri hverja nótt..
ætla nú ekki að segja mikið um það þar sem ég er nokk viss um að ég sé bundin einhverju sem segir að ég megi ekki láta út úr mér það sem gerist í vinnunni!!
En þess vegna er gott að hafa Binna svo við getum hlegið af öllu sem við lendum í!!

Svo eitt enn.. ég varð frænka aftur á föstudaginn síðasta :D
Dóri bróðir og Jónína eignuðust sitt annað barn, sem reyndist vera "lítil" (58 cm og nærri 20 merkur) hnáta.
Því ríkir þvílík gleði og hamingja á okkar heimili og óska ég þeim bara enn einu sinni til hamingju með prinsessuna.

en áður en þetta fer út í meiri væmni þá ætla ég að hætta þessu.. og er bara að spá í að henda einni skoðunakönnun með svona í tilefni dagsins.

og svo líka stjörnuspáin mín.. verð að segja að þetta er ótrúlega rétt einhvernmegin!! 

 ARIES - The Aggressive

Outgoing. Lovable. Spontaneous. Not one to mess with. Funny. Excellent kisser EXTREMELY adorable. Loves relationships, and family is very important to an aries. Aries are known for being generous and giving. Addictive. Loud. Always has the need to be 'Right'. Aries will argue to prove their point for hours and hours. Aries are some of the most wonderful people in the world.


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 07:58:34 / Svandís

það er...

PÁSA!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 20:37:46 / Svandís

skoðunakönnun

 

já.. ég ætla sko ekki að vera að taka mark á þessari skoðunakönnun þar sem að það eru 2 manneskjur sem hafa kosið endalaust oft NEI.. ég veit vel hverjir kusu Nei!!

en ég er algjörlega hugmyndasnauð þannig að ég setti enga skoðunakönnun í bili.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 21:21:49 / Svandís

þegar maður var lítill


ca. 2-3 mánaða

1 árs

14 mánaða símadama.. eins og í vinnan hjá mér í dag

ég átti það til að bíta.. og á það reyndar til enn þann dag í dag

alltaf gaman í sveitinni

1 og 1/2 árs blómastelpa

2 ára prakkari

3 ára afmælisskvísa

5 og 1/2 árs með Eyrúnu litlu frænku.. sem er by the way orðin stærri en ég

Kristrún frænka og ég ca. 6 ára.. aka. Svandís 2 & Svandís 1

Já ætli ég sé ekki með smá fortíðarþrá.. það var svo gott og einfalt að vera lítill, væri stundum alveg til í að vera orðin lítil aftur!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 21:50:21 / Svandís

Úr einu í annað

Afhverju er það alltaf þannig að þegar ég ætla að fara að blogga man ég ekki hvað ég ætlaði að blogga um.. veit ekki til hvers ég er að þessu!!

Justin er kominn í lag!! Það var bara smá vír sem var ónýtur.. þannig að þetta voru ekki jafn margir þúsund kallar og ég var farin að búast við!! og núna keyrum við saman alsæl ;)

Jörðin nötrar og himinn grætur!!
Ég fann minn fyrsta jarðskjálfta á ævinni á fimmtudaginn og svo fann ég fyrir 2 minni á föstudaginn. Og ég verð að segja að mér finnst þetta ekkert smá spúkí!!! ég er greinilega rosalega lítil í mér því að ég varð smá hrædd, þó þetta væru bara frekar litlir sjálftar eða í kringum 3 á rikter, ekkert smá óþæginlegt að finna allt hristast og þvílíkur hávaði!! Ye I don't like it one bit!!

Svo er það rigningin!! Endalaust þessa dagana, vatnsyfirborðið í Ölfusá hækkar stöðugt og það liggur við að maður fari að búast við flóði eins og í fyrra. En ég væri svo til í smá sól... það myndi sko gleðja mitt litla hjarta!

Núna eru um 2 mánuðir þangað til ég flyt í Kópavoginn.. og ég er aðeins farin að leyta að vinnu núna, þó það sé eitt leiðinlegasta sem ég veit um. Erfitt að finna góða vinnu!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4